Fréttir

Total items: 1194

Fyrsti leikurinn í Íslandsmóti meistaraflokks

Dags: 20.09.2002 20:48


Laugardaginn 21. september fer fram fyrsti leikurinn í Íslandsmóti karla í meistaraflokki en þá eigast við SR-ingar og Björninn. Um síðustu helgi léku þessi lið saman æfingaleik þar sem SR vann í æsispennandi leik 7-5. Þá brá við mörgum góðum tilþrifum og er greinilegt að SR liðið er í mikilli sókn undir stjórn hins nýja þjálfara, Peter Bolin. En nú er hinsvegar komið að alvörunni! Mætum öll og hvetjum okkar lið en leikurinn hefst kl. 20:00.