Fréttir

Total items: 1194

Óþekkjanlegur...

Dags: 25.09.2002 12:57


Einn leikmaður Bjarnarmanna í síðasta leik brá á það ráð að breyta útliti sínu. Það var hann Ísak varnarjaxl. Hann gerði sér lítið fyrir og rakaði af sér hökutoppinn sem hann er búin að vera með í nærri 4 ár. Er sú kennning á lofti að hann hafi gert þetta til þess að fela sig fyrir dómara leiksins,Viðari Garðarssyni. Hefur þetta kænskubragð greinilega heppnast því að hann fór ekki einu sinni í boxið, en áður var hann vanur að heimsækja það nokkrum sinnum í leik. Er þetta gríðarlega mikil breyting hjá stráksa og til batnaðar.