Dags: 30.09.2002 16:57
..ekki í gærkvöldi. Meistaraflokkur SR og Gulldrengir djúníorar tóku léttan leik í gærkvöldi. Óopinber úrslit voru mörg á móti mörgum og enn fleiri. Þessi leikur var hin skemmtilegasti. Gamlir jaxlar einsog Heiðar Ingi, Viðar G., Andrés formaður og Bjarni Járn-mallari létu sjá sig. Nokkur fjölgun hefur verið í þessum flokki og verður honum gerð góð skil á þessum vef.