Dags: 07.10.2002 17:19
Það er óhætt að segja að allt sem gat klikkað hjá meistaraflokki SR ... klikkaði. Í hvert sinnið sem SR gerði mistök náðu SA menn að nýta sér þau. Í fyrsta leikhluta var ekki mikið um tíðindi en norðanmenn náðu þó að skora eitt og var þar smá-mennið Kenny Corp að verki. Í annari lotu var einsog heillagyðjan hafi sest á bekkinn hjá SA. Allt gekk upp hjá heimamönnum og allt á afturfótunum hjá gestunum. Í þeim leikhluta náðu SA-menn að skora 6 mörk á móti einu hjá SR. Þriðji leikhluti var ekkert heldur til að hrópa húrra fyrir og skoruðu SA-menn 3 mörk á móti 1 hjá SR. Vægast sagt slök frammistaða hjá SR. Ekki er hægt að segja að þessi leikur hafi verið skemmtilegur á að horfa þar sem hann var lítið sem ekkert spennandi og lítið um gott samspil hjá liðunum. Þó nokkuð var um tilþrifamiklar tæklingar; sérstaklega er eftirminnileg tæklingin hjá Ágústi Ásgrímssyni á hann Erling, en Erlingur lá eftir í roti og vissi ekki í þennan heim né annan er hann komst til meðvitundar.
Óþarfi er að tíunda hér hvað hefði betur mátt fara í leiknum því allt mátti betur fara! Eitthvað þarf að tuska til vörnina og sóknina, duglega, ef ekki á að missa af þessum titli enn og aftur norður yfir heiðar, eða í hendur Bjarnarmanna.
Nokkar breytingar voru gerðar í röðum leikmanna SR fyrir þennan leik og má þar nefna að þjálfari liðsins, Peter Bolin, spilaði með og gerði þar ágæta hluti. Einnig var unglingurinn Úlfar Andrésson settur þar inn með Ingvari Jónssyni og Steini Rúnarssyni í fremstu víglínu og náði hann þar einni stoðsendingu, nokkuð ljóst að hann á eftir að gera góða hluti í framtíðinni.Eitt er þó ljóst að leikur SR getur ekki annað en batnað úr þessu og eru SR menn staðráðnir í því að einbeita sér fyrir næstu umferð en næsti leikur verður við Björninn næstkomandi sunnudagskvöld kl.20:00.
Það sem einnig vakti athygli í þessum leik var að Snorri G. Sigurðarson var mættur aftur í dómaragallann eftir árs hlé. Verður það að segjast að hann hefur engu gleymt og var dómgæslan í leiknum til mikillar fyrirmyndar