Dags: 09.10.2002 16:17
Leikmenn í meistaraflokki SR verða eitthvað færri núna í næsta leik sem verður næstkomandi sunnudag því Jónas Rafn og Ágúst verða þar fjarri góðu gamni. Jónas varð fyrir meiðslum í leiknum á móti SA um síðustu helgi og verður hann í gifsi eitthvað næstu dagana. Við þetta gefst þeim yngri, sem eru að reyna að komast upp í meistaraflokkinn, tækifæri á því að sýna hvað í þeim býr. Ef eitthvað er að marka árangur þeirra yngri í undanförnum leikjum, þá verður það líklega hin besta viðbót í annars skrautlegri leikmannaflóru meistaraflokks SR.