Fréttir

Total items: 1194

Baráttuvilji ekki nóg.

Dags: 15.10.2002 10:43


SR og Björninn mættust í gærkvöldi í hörðum og skemmtilegum leik. Bjarnarmenn mættu fylktu liði í skautahöllina með 24 leikmenn á móti 13 leikmönnum SR. Leikurinn fór skemmtilega af stað og virtist vera jafnt með liðum í fyrstu. Ekki leið á löngu þar til Bjarnarmenn voru búnir að skora fyrsta markið í leiknum en fyrsta lotan fór 4:2. Önnur lota hefur yfirleitt verið SR-ingum erfið og liðið oftar en ekki tapað þeirri lotu. Ekki var það svo í þessu leik og náðu SR-ingar að halda jöfnu í þeirri lotu. Í þriðju lotu vantaði að pökkurinn rataði í rétt mark og hvernig sem menn miðuðu á markið þá endaði pökkurinn annað hvort í bumbu markmanns Bjarnarins, Rósars, eða í hanskann hjá honum; aðalmein SR-inga virðist því vera skortur á markaskorara. Stórir og mikilr SR-ingar reyndu hvað þeir gátu en þeir máttu sín lítils á móti smáum og snöggum Bjarnarmönnum sem nýttu hvert færi sem gafst. SR-ingar verða nú að taka sér tak, ef þeir ætla ekki að sitja eftir með sárt ennið, sáran bossann og missa af úrslitakeppninni.
Þeir sem skorðu fyrir SR voru James Devine(14) með 2 mörk, þjálfari liðsins Peter Bolin(2) með 1,Ingvar Þór(20) með 1 og aldursforsetinn Kristján "Diddó" Óskarsson(11) með 1 fallegt mark.
Dómari leiksins var Magnús Finnson frá Akureyri.