Fréttir

Total items: 1194

Kvennahokkí í SR.

Dags: 15.10.2002 15:51


Um helgina var brotið blað í íshokkísögu SR en þá tefldi SR fram í fyrsta skipti kvennaliði í Íslandsmóti. SR mætti í sínum fyrsta leik Birnunum á laugardagskvöldið að viðstöddu talsverðu fjölmenni. Í stuttu máli fóru leikar svo að Birnurnar unnu 4:1 í skemmtilegum leik. Glöggt mátti sjá að æfingaleysi SR-stúlkna hrelldi þær en þær hafa bara farið á eina sameiginlega æfingu í vetur. Með reglulegum æfingum verða þær líklegar til afreka í vetur ef þær ná að stilla sér saman. Næsti leikur í Íslandsmóti kvenna er á milli Birnanna og SA-stúlkna norður á Akureyri. Þær SR stúlkur eru tóku þátt í þessum fyrsta leik voru: Brynja Vignisdóttir, Inga Björk Svavarsdóttir, Óla Kallý Magnúsdóttir, Sólveig Þorvaldsdóttir, Patricia Pyrka, Birna Baldursdóttir, Berglind Ólafsdóttir, Guðrún Fönn Tómasdóttir og Maria O´Connor. Mark SR, sem jafnframt er þá fyrsta mark SR í Íslandsmóti kvenna, skoraði Birna eftir stoðsendingu frá Patriciu. Von er á mynd af þessu liði á vefsíðu SR bráðlega.