Dags: 18.10.2002 17:11
Núna um helgina verða leikir hjá SA og Birninum bæði í kvenna og karlaflokki.
Bjarnarmenn hafa fengið aukið sjálfstraust til að takast á við kokhrausta norðanmenn eftir að hafa unnið okkur SR-inga um síðustu helgi. Óneitanlega eiga norðanmenn eftir að verða fyrir smááfalli þegar þeir sjá leikmannabekkinn hjá Bjarnarmönnum þar sem stórfjölgun hefur átt sér stað. Ekki er verið að tala um erlenda leikmenn heldur er verið að tala um þá leikmenn sem hurfu úr Birninum fyrir nokkrum árum en alls voru 24 leikmenn hjá Birninum í síðasta leik.
Einnig verður leikur hjá kvennaliðum þessar liða. Þær fyrir norðan eru eflaust sigurvissar en það verður gaman að sjá hvernig þau átök enda því Bjarnarstúlkurnar hafa æft af kappi og vaxið með hverju árinu.
Fréttir af þessum leikjum verða settar hér inná vefinn um leið og þær berast.