Fréttir

Total items: 1194

SR-ingar taka til hendinni!!

Dags: 19.10.2002 13:39


Núna í morgun, nánar tiltekið fyrir allar aldir, hópuðust SR-ingar af öllum stærðum og gerðum við Hótel Esju vopnaðir hreinsitólum, kústum og skóflum. Verkefnið var að taka til þar innandyra. Ekki var þetta mikið verk fyrir þetta fólk, alls 20 manns, enda margir vel-sjóaðir iðnaðarmenn. Þessi myndarlegi hópu sýndi það og sannaði að SR-ingar get allt þegar allir eru samstilltir í huga og verki, nú þarf bara að yfirfæra þetta yfir á ísinn.

Þessi frækni hópur sópaði og lagaði til þar innandyra á nýju íslands-, evrópu-, og gott ef ekki heimsmeti. Svo mikill var hamagangurinn á tímabili að iðnaðarmenn máttu sig lítils við hliðinni á sterkum og öflugum SR-ingum.