Dags: 21.10.2002 08:55
Venjulega enda íshokkíleikir ekki með svona hárri markatölu en það er löngu orðið ljóst að íslenskt hokkí er sér á báti. Lesa má úr grein sem birt er á icehockey.is að um auðveldan leik hafi verið að ræða fyrir norðanmenn. Ef ekki á að endurtaka jafn óspennandi deild einsog í fyrra þá verða Reykjavíkurfélögin að taka sig saman í andlitinu og sýna hvað þau geta í íshokkí. Einnig kemur fram í sömu grein að Bjarnarmenn hafi verið einum eða fleiri færri bróðurpart af leiknum eða alls í 45.mínútur. Meira um þennan leik síðar.
Einnig var keppt í kvennadeildinni og lítur út fyrir að um spennandi keppni verið að ræða í þeim flokki. Bjarnarstúlkur tókust á við stöllur sínar í SA og endaði sú viðureign 5:4 SA-stúlkum í vil. Gaman verður að sjá hvernig kvennalið SR tekur á SA stúlkum um næstu helgi. Meira um það þegar nær dregur.