Dags: 23.10.2002 09:40
Skrifað var hér á vefinn um síðustu helgi, eftir leik SA og Bjarnarins í Íslandsmóti karla, að Björninn hafi verið lungann af leiknum í boxinu; það var ekki rétt.
Eftir að hafa fengið nánari upplýsingar um refsimínúturnar í leiknum kemur í ljós að af þessum 45 mín. er Björninn fékk er einn 25 mín. dómur. SA-menn voru því einum manni færri á ísnum 3 mín. lengur en Bjarnarmenn. Rétt skal vera rétt.