Fréttir

Total items: 1194

Skýr skilaboð frá íHÍ.

Dags: 23.10.2002 13:35


Stjórn ÍHÍ ræddi á fundi sínum 3. október síðastliðinn sérstaklega hvernig koma mætti í veg fyrir ásetningsbrot í formi slagsmála sem nokkuð hefur borið á í leikjum meistaraflokks á síðustu árum.

Stjórn ÍHÍ ræddi málið frá ýmsum hliðum og voru allir stjórnarmenn sammála um að sambandið þyrfti að gefa frá sér ákveðin skilaboð um að það líði ekki brot af þessu tagi. Í framhaldi af því var eftirfarandi bókun gerð og henni komið á framfæri við aganefnd: „Stjórn ÍHÍ beinir því til aganefndar að beita sem lágmarksrefsingu 2ja leikja banni í þeim tilfellum þar sem leikmaður hefur hlotið leikdóm (Match penalty) fyrir slagsmál.”

Stjórn ÍHÍ lítur á þetta sem fyrsta skref sitt til þess að koma í veg fyrir gróf ásetningsbrot og er tilbúin til þess að mæla fyrir um enn harðari viðurlög ef þetta dugar ekki.