Dags: 24.10.2002 19:15
Um helgina, nánar tiltekið laugardagskvöld, verða tveir leikir í Íslandsmótinu karla og kvenna. Hefst kvennaleikurinn kl.18:20 og karlaleikurinn kl.20:00. Norðanmenn eru komnir í mjög sterka stöðu þar sem þeir unnu Björninn 12-5 um síðustu helgi. Karlalið SR er búið að æfa stíft uppá síðkastið og ætla sér stóra hluti um helgina. Það sama má segja um kvennaliðið. Fyrir þá sem eru eitthvað efins um hvað þeir eigi að gera um helgina, þá er bara að skella sér í höllina og kíkja á leikinn. Kaffi og með því verður til sölu í leikhléi gegn vægu gjaldi. Áfram SR!!!