Dags: 28.10.2002 10:55
Ágúst Ásgrímsson verður fjarri góðu gamni núna á laugardagskvöldið þegar SR mætir SA en hann varð fyrir því óláni að lenda í árekstri nú á dögunum og er víst ekki leikfær. En í SR er nóg til af varnarmönnum, þó ekki af sama sauðahúsi og hann Gústi. Nýverið gekk til liðs við SR finnsk-íslenskur drengur að nafni Richard Táhtinen en hann ku hafa spilað í Junior A í Finnlandi. Hann hefur æft með SR uppá síðkastið og reynst vel. Hann er, einsog margir SR-ingar, varnarjaxl og á hann eftir að styrkja liðið í vetur.
Átökinn byrja kl.20:00 á laugardagskvöldið og verður mikið um dýriðir og verður sú nýbreyttni fyrir áhorfendur að nú geta þeir sem vilja, tekið þátt í happadrætti á vegum félagsins. Happadrættisvinningarnir eru frá Bræðrunum Ormsson