Dags: 28.10.2002 10:56
SR-ingar sýndu það vel á laugardagskvöldi að þegar þeir setja sér markmið og vinna að því í sameiningu þá er allt hægt. SR spilaði loksins einsog samstillt strengjahljómsveit þar sem jafnvægi milli sóknar og varnar var gott. Marktækifæri SR-inga í leiknum voru æði mörg og oft mikill hasar fyrir framan mark SA manna. En allt kom fyrir ekki, pökkurinn vildi ekki í netið. Það var kannski merkilegt við þennan leik að markatala var ekki sérlega há, rétt einog á að vera í íshokkí. Fyrsta mark leiksins kom á 17. mínútu í fyrsta leikhluta og var þar SA maðurinn Isak Hudson sem skoraði með góðu skoti. Annað mark leiksins koma ekki fyrr en liðnar voru 4 mínútur af öðrum leikhluta en þá læddi Rúnar "Lurkur" lúmskuskoti inná milli fótana á Gulla yfirmarkverju SR-inga. SR náði síðan að svara fyrir sig rétt rúmum tveimur mínútum síðar og var það hinn knái leikmaður Ingvar Þór að verki með aðstoð frá Elvari Thunder og Úlfari Andréssyni. Fleiri mörk voru ekki skoruð í þessum leikhluta. Í þriðja leikhluta var ekkert skorað fyrr en eitt allsherjar "grísar" mark kom á 10. mínútu eftir skot frá Isak Hudson, en pökkurinn hrökk beint uppí loft fyrir ofan Gulla markmann og datt síðan niður rétt fyrir innan marklínu SR - hreint ótrúleg lukka fyrir SA. SR-ingar voru ekki af baki dottnir og tóku sig saman í andlitinu og skoruðu eitt mark þegar rétt tæpar 7 mínútur voru til leiksloka. Var þar að verki Snorri Rafnsson með aðstoð frá nýliða liðsins, Richard Tahtinen. Lokaniðurstaða var 3:2 SA í vil. Þetta sýnir það að ALLT er hægt þegar menn taka sig saman í andlitinu og stefna að sama markmiði. Núna hefst svo undirbúningur fyrir leikinn á móti Birninum sem verður sunnudagskvöldið 3.nóvember.
Refsimín.
SR: 14
SA: 20
Skot á mörk:
SR: 25
SA: 28
Dómari leiksins: Snorri G. Sigurðsson.