Fréttir

Total items: 1194

Suðurveldin mætast!

Dags: 01.11.2002 14:58


Núna á laugardagskvöldið mætast SR og Björninn í Íslandsmóti karla. Það er engum blöðum um það að fletta að SR er komið með ákveðið sjálfstraust eftir leikinn á móti SA-"Víkingum" um síðustu helgi. Ljóst er að SR-vörnin þarf að spila gríðarlega vel til að hleypa ekki þeim Breka og Zak inn fyrir og ofan í Gulla yfirmarkverju SR. Leikmenn SR er staðráðnir í að halda sama "tempói" og var um síðustu helgi. Varnarmaðurinn Richard "Hin finnski" er klár í slaginn og er hann hvergi smeykur við rússnenskan hlaupa-björn eða sprettharðan Breka-tígur. Gústi "Hin Danski" er óðum að jafna sig eftir "back-check" í umferðinni. Þó er ekki vitað hvort hann verði með í leiknum ... kemur í ljós. Fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvað þeir eigi að gera um helgina þá liggur það ljóst fyrir... Skautahöll...Laugardalur.. kl.20:00 !! Áfram SR!!!