Dags: 04.11.2002 16:32
Leikur meistaraflokksins s.l. laugardagskvöld var hreint út sagt stórkostlegur hjá SR. Agaður leikur og góð liðsheild gerði þar gæfumuninn. Leikmenn komu vel undirbúnir og ferskir til leiks á móti sigurvissum Bjarnarmönnum. Strax frá fyrstu mínútu var ljóst hvert stefndi þegar SR-ingar voru meira eða minna með pökkinn. Snorri Rafnsson stimplaði sig inn þegar rétt rúmar 4 mínútur voru liðnar af leikhlutanum með geysifallegu bakhandarskoti í þaknetið framhjá köldum markmanni Bjarnarmanna, Scott Bradley Williston. Annað markið kom þegar tæpar 4 mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta og var þar aftur Snorri Rafnsson að verki með aðstoð frá Richard Tatinen eftir fallegt sóknarspil, en Bjarnarmenn voru einum manni færri þegar það mark var skorað. Ekki voru mörkin fleiri í þeim leikhluta, staðan 2-0 SR í vil.
Þegar 9 mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta skoraði "Súper"-Kristján Óskarsson eitt mark með smá aðstoð frá Richard Tatinen. Þessu marki mótmæltu Bjarnarmenn og töldu Richard hafa sparkað pekkinum inn. Það hefði þó verið ógerningur því hann snéri baki í markið og var í barningi við einn varnarmann Bjarnarmanna. Markið dæmt gott og gilt og leikurinn hélt áfram. Rétt rúmum 30 sekúndum síðar skoraði Snorri Rafnsson sitt þriðja mark í leiknum og náði þar með "hat-trick", eða 3 mörk í leik, með aðstoð frá Ingvari Jónssyni. Mörkin voru ekki fleiri í þeim leikhluta.
Í þriðja og síðasta leikhluta var allt í járnum en Bjarnarmenn þó oft ekki langt frá því að skora. Gulli yfirmarkverja múraði hins vegar í markið og ekkert komst inn, ekki einu sinni þegar hann lá á bakinu kylfulaus og horfði upp í þakið. Ekkert mark var skorað í síðasta leikhlutanum og lokastaðan því 4 - 0 SR í vil.
Oft í leiknum áttu SR-ingar dauðafæri sem ekki tókst að nýta, þar á meðal var einstaklega fallegt samspil hjá þeim Snorra, Helga og Árna Valda sem ekki rataði alla leið. En þetta er bara vísir af því sem koma skal hjá SR.
Þónokkur hasar var í leiknum og menn oft æði heitir á köflum. Eitt skiptið keyrði t.d. Bjarnarmaður inní Gulla Markverju við litlar vinsældir Gulla og í annað skiptið beitti leikmaður Bjarnarins óhefluðu hnefamáli til að ræða við hann Árna Valda. Útkoman var ekki svo góð fyrir Bjarnarmenn þar sem þeir misstu fyrir vikið einn í kalda sturtu og Bjarnarmenn því einum færri í 5 mínútur.
Mörgum kom það á óvart hversu vel SR-ingar náðu að halda niðri markamaskínunum Sergei Zak og Jónasi Breka, en það má þakka stífri og agaðri vörn SR.
Næsti leikur SR verður á norðurslóðum. Það má með sanni segja að SR verði með mikið stuðningslið á þeim leik því allt félagið verður þar efra vegna hins árlega Brynjumóts. Allir flokkar félagsins, að undan skildum kvennaflokki, munu keppa helgina 15. til 16. nóvember á Akureyri. Höfðuborg norðursins verður því hertekin af sunnlenskum íshokkí-risum og ef marka má síðustu ár, þá á enginn íshokkí aðdáandi að láta sig vanta á þennan viðburð.
Refsimínútur:
SR: 12.mín
Björninn: 31 mín þar af 1 leikdómur.
Aðaldómari leiksins: Magnús Finnsson.
Áfram SR!!!