Dags: 10.11.2002 16:36
Í gærkveldi fór fram annar leikur í 3. umferð Íslandsmóts karla, en þá léku Björninn við SA. Björninn kom heldur ferskari til leiks og skoraði fyrsta mark leiksins. Eitthvað hafa norðanmenn borðað yfir sig af KEA skyrinu því þeir voru nánast allir með steypuklumpa á fótunum sem greinilega hindraði spilamennsku þeirra verulega. Handahófskenndar sendingar upp eftir miðjum ís skiluðu sér sjaldan á rétta kylfu hjá SA. Björninn kom skipulagðari til leiks og t.d. var uppspil þeirra á köflum mjög gott.
Sá leikmaður sem stóð sig einna best hjá Bjarnarmönnum var á efa Bradley markmaður. Hann varði gríðarlega mörg skot og þar af fjöldann allan úr dauðafærum. Sá leikmaður sem stóð sig einna best hjá SA var kanadíski varnarmaðurinn Izaak Hudson, sem oftar en ekki bjargaði markmanni SA, Jóni Trausta, frá markamaskínunum Breka og Zak. En allt kom fyrir ekki, leikurinn endaði 5:3 Birninum í vil. Margir vilja útskýra þessi úrslit með því að lykilmenn SA, þeir Rúnar og Kenny, hafi þurft að glíma við meiðsli, annar í þumlinum en hinn í öxlinni. Leikurinn var annars skemmtilegur á að horfa, bara "tú þumms öpp", einsog einhver sagði.
Nánar um leikinn síðar þegar leikskýrsla skilar sér í hús.
Næsti leikur verður norður á Akureyri um næstu helgi en þá takast á stórveldin SR og SA. SR kemur með heila herdeild af stuðningsliði en því má þakka Brynjumótinu, sem SA stendur fyrir þessa sömu helgi. Fyrir áhugamenn um íshokkí er þetta leikur sem enginn má missa af, en SR kemur með 2 sigra í farteskinu og stefnan því tekin á sigur og ekkert annað.
Áfram SR!!!