Dags: 11.11.2002 17:18
Það er engu líkara en að SA-menn hafi hreinlega sofnað á leiðinni yfir heiðina, og ekki náð að hrista sig saman fyrir leikina, hvort sem var í 3. flokki eða meistaraflokki.
Leikur 3. flokks endaði 4 - 1 fyrir Bjarnarstráka en þar sýndu yngri Bjarnarmenn góða takta.
Meistaraflokkur Bjarnarins tók sömu stefnu og 3.flokkurinn: Fyrsta mark leiksins kom á 8. mín er Jónas Breki Magnússon skoraði fyrir Björninn með aðstoð frá Sigurði Sveinbjarnarsyni. Eitthvað fór þetta mark í skapið á Rúnari Rúnarssyni hjá SA, því hann tók sig til og skorði tvö mörk á innan við mínútu, með aðstoð frá Birni Jakobssyni í fyrra markinu og með aðstoð frá Sigurði Sigurðssyni og Daða Heimissyni í því seinna. Rétt tveimur mínútum síðar bættu markadúettinn Jónas og Siggi við öðru marki fyrir Björninn. Áður en lotunni lauk náði Sergei Zak að koma Birninum yfir 3 - 2 með fínu marki eftir að hafa prjónað sig í gegnum varnarmenn SA.
Þegar rétt rúmar 10 mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta skoraði hinn knái leikmaður Birgir Hansen glæsilegt mark eftir stoðsendingu frá Bergmundi Elvarssyni. Enn og aftur fauk í "Lurkinn" er hann tók sig til og minnkaði muninn fyrir SA með glæsilegu marki eftir gott spil þeirra Kenny og Sigga Sig. Bynjar Þórðarson innsiglaði svo sigur Bjarnarmanna þegar tæpar 10 mínútur voru til leiksloka. Þetta var gríðarlega fallegt mark úr þröngu færi eftir vel spilað "power-play" á grandalausa SA-menn sem voru 3 á ísnum. Lokastaðan 5 - 3 Birninum í vil.
Þónokkuð mæddi á Ágústi Ásgrímssyni aðaldómara í leiknum, þar sem heitara en venjulega var á milli liðanna. Svo heitt var á köflum að fjórir leikmenn þurftu að bregða sér í kalda sturtu, tveir hjá SA og tveir hjá Birninum. Einungis einn af þessum fjórum fékk leikbann fyrir slagsmál og vonandi verður þetta öðrum víti til varnaðar.
Talsvert var af áhorfendum á leiknum og er það þróun í rétta átt. Fleiri og fleiri leggja leið sína í höllina þegar leikir eru. Áður en langt um líður má jafnvel búast við að leikjum í deildinni verði sjónvarpað.