Dags: 14.11.2002 17:06
Um 150 manns frá SR munu fara norður yfir heiðar til að taka þátt í Brynjumótinu á einn eða annan hátt. Flestir fara á einkabílum en margir fara með SR-rútunni. Á efa er mikill spenningur í mannskapnum fyrir þessa helgi og þá sérstaklega þeim yngri þar sem þetta mót er jú sérstaklega fyrir þann aldurshóp.Á laugardaginn kl. 17:00 leika síðan meistaraflokkar SR og SA annan leik 3. umferðar. Það er löngu orðið ljóst að það verður verulega kátt í höllinni þegar þessi tvö lið etja kappi.
Fyrir þá sem verða fyrir norðan er um að gera að koma niður í Skautahöllina á Akureyri og sjá þungaviktarhokkínaglana hjá SR sýna þeim bændum norður í landi hvernig á að spila íshokkí! Þar verða án efa í fararbroddi hjá SA þeir Rúnar "þumall", Siggi súri og Kenny "mannspartur", svo einhverjir séu nefndir. Miðað við gengi SA og SR í síðustu leikjum verður að segjast að SR er með góðan meðbyr til að taka á þeim norðlensku, og sýna þeim hvernig á spila íshokkí á sænska-vísu, í stað norðlenska kerfisins "innbæjingarútumallt" og "kick-and-run" (þ.e. ef Denni verður inná).
Fréttir af þessum leikjum munu birtast á skautafelag.is eins hratt og mögulegt er!!
Áfram SR!!!