Dags: 18.11.2002 17:45
Þá er Brynjumótinu lokið! Það er óhætt að segja að sjaldan hafi jafnmörg börn úr SR og foreldrar þeirra tekið þátt í þessu árvissa móti sem Akureyringarnir standa fyrir. Veðrið lék við þátttakendur og góð stemmning ríkti í herbúðum SR-inga allan tímann, enda þótt stundum hafi á móti blásið í einstaka leikjum og sumir viljað ná enn betri árangri - en það kemur mót eftir þetta. Öll stóðu liðin sig með sóma og gaman var að sjá hversu mikil breidd er að myndast í liðunum með tilkomu margra, efnilegra nýliða. Ekki skemmdi það helgina að geta fylgst með og hvatt meistaraflokkinn í stórkostlegum leik á laugardeginum.
Stjórn íshokkídeildar SR vil koma á framfæri þakklæti sínu til stjórnar SA og foreldrafélags þess fyrir höfðinglegar og vinsamlegar móttökur og skemmtilega helgi.
Stjórnin vill ennfremur þakka foreldrum fyrir samvinnuna fyrir norðan og þann góða félagsanda sem ríkti meðal þeirra á mótinu. Sérstakar þakkir fá Kolbrún "Kolla" Kristleifsdóttir og Hjörleifur Jónsson og Brynjumótshópur þeirra fyrir frábært starf, sem og fararstjórinn Sigurður Benediktsson og liðstjórarnir Sigurjón Sigurðsson (6 7 fl), Þórhildur Sverrisdóttir og Ragna Ragnarsdóttir (5 fl), og Þröstur Sigurðsson og Guðlaugur Níelsson (4 fl). Svo viljum við þakka öllum leikmönnum okkar fyrir góða frammistöðu innan vallar sem utan. SR-ingar hafa ástæðu til að vera stoltir þessa dagana!