Dags: 21.11.2002 15:38
Eftir leik SR og SA um síðustu helgi lítur út fyrir að Íslandsmót karla verði töluvert meira spennandi en undanfarin ár. Björninn og SR hafa bæði unnið SA í æsispennandi leikjum þar sem oft hefur mikið gengið á. Reykjavíkurliðin hafa sýnt mikla baráttu í þessum leikjum og uppskorið verðuga sigra. Ef norðanmenn halda áfram á sömu braut er ekki gott að segja hverjir komast í úrslitin í vor. Bjarnarmenn hafa æft mikið undanfarið og skotið óspart á Bradley markmann, sem er óðum að komast í gott keppnisform. Við SR-ingar höfum einnig æft stíft, m.a. hraða og tímasetningar. SA-ingar virðast hafa vaknað af fúlum svefni þegar SR-ingar komu fylktu liði norður og sigruðu þá á heimavelli, bæði á ísnum og á áhorfendapöllunum. Og núna á að fara að hlaupa.
Um næstu helgi verða stórátök þar sem sunnanveldin mætast í Skautahöllinni í Laugardal á sunnudagskvöld kl. 20:00. Bjarnarmenn eru komnir með "blod pa tanden" og hungraðir í sigur á móti SR eftir síðasta leik liðanna, sem endaði eftirminnilega 4 - 0 fyrir SR. SR-ingar eru staðráðnir í að halda uppteknum hætti frá því í síðustu leikjum og spila sitt íshokkí.
Undir 20 ára landsliðið verður í stífum æfingabúðum um helgina og svo er hér eldri-manna lið einhverstaðar utan úr heimi en það mun spila einn leik við U20 liðið; nánar um það síðar. Svo má náttúrulega ekki gleyma 3.flokks leiknum sem verður kl.18:00 á sunnudaginn.
Áfram SR!!