Dags: 25.11.2002 10:59
Óformlegur landsleikur fór fram í Skautahöllinni í Laugardal í hádeginu. Mættir voru til leiks Potatoshacks Seniorteam frá USA gegn landsliðsúrvali Gulldrengja hér sunnanlands. Í sem skemmstu þá höfðu Íslendingar yfirhöndina í þessum leik nær allan tímann. Gulldrengja-landsliðið hafði nokkra spræka leikmenn sér til fulltyngis sem sáu um að skauta hratt í vörn og sókn, á meðan þeir sem voru "ekki jafn fljótir" náðu að taka sér stöðu fyrir framan markið. Leikinn var 2 X 20.mín og fóru leikar 6 - 2 fyrir Ísland.
Þeir sem voru mættir þarna fyrir Íslands hönd voru:
Rúnar Sleggja Steinsen
Súper-Diddó Óskarsson
Andés Rósarbóndi Úlfarsson
Paul Hinn ferski Lydon
Peter Þjálfi Bolin
Gummi Kalli Sá Hrausti
Matti tattú
Frikki tattú
Daði Liðhlaupi Heimisson
Árni Sá fimi
Helgi Hinn mikli
Úlfar Hinn ungi Andrésson
Bekkjarstjóri var Sergei Sá litli Zak
Var þessi leikur hinn skemmtilegasti og voru áhorfendur alls 10 þar af 9 frá USA. Dómarar leiksins voru Snorri Snöggi Sigurðusson og Finnskur gestadómari.
Nokkrir leikir verða á dagskrá í höllinni um helgina og þar af eru einhverjir leikir við U20 landslið Íslands. Nánar um það síðar.