Dags: 26.11.2002 19:10
Þeir sem fylgst hafa með leikjunum í Íslandsmóti karla í haust hafa eflaust tekið eftir því að slagsmálum leikmanna hefur stórlega fækkað, ef borið er saman við undanfarin ár. Þessi þróun skiptir miklu máli fyrir íþróttina hér á landi, sérstaklega í ljósi þess að almennum áhorfendum, sem hafa takmarkaðan áhuga á slíkum áflogum, fer mjög fjölgandi. Hverju má þakka slíka þróun? Kannski eitthvað af eftirfarandi:
Í fyrsta lagi hafa nýjar reglur ÍHÍ (leikbann vegna slagsmála) greinilega haft mikil áhrif. Í öðru lagi hafa flestir leikirnir verið mjög jafnir og spennandi og því meiri ástæða til að forðast brottrekstur er gæti riðið baggamuninn á úrslitum. Í þriðja lagi veldur ójafn leikur oft mikilli "örvilnun" hjá sumum leikmönnum í lakara liðinu sem gjarnan brýst þá út í árásarhneigð. Í fjórða lagi hafa þjálfarar e.t.v. lagt meira upp úr aga en áður, en síðast en ekki síst: þessir leikmenn eru betri og þroskaðri en fyrir ári síðan og þeir eiga einfaldlega hrós skilið fyrir góða leiki með mátulegum skammti af fangbrögðum.