Fréttir

Total items: 1194

Bjarnarher norður yfir heiðar!!

Dags: 29.11.2002 14:46


Björninn fer núna um helgina til Akureyrar til að takast á við norðlenska íshokkínagla í SA en bæði þessi lið hafa legið fyrir hinu gríðarsterka liði SR í spennandi leikjum. Bjarnarmenn hafa þó farið verr út úr þessum leikjum eða þeir töpuðu í tvígang 4 - 0.
SA varð fyrir áfalli þegar stórfylking SR kom sá og sigrði á heimavelli SA nú á dögunum. Norðlensku tröllin hafa í kjölfar þessa sigurs SR-ingana, vaknað við fúlan og vondan draum og ákveðið að fara út að hlaupa, hver í kapp við annan.
Úr Bjarnarhýðinu hefur heyrst urr og væl þar sem þeir bjarnarhúnar hafa grátið sáran yfir því að SR-múrveggurinn Gulli hafi lokað á þá í tvígang í síðustu leikjum á móti SR. Eru þeir nú orðnir dýrvitlausir og hungraðir í sigur... eða allavegana í það minnsta mark.
Við SR-ingar sláum hvergi slöku við og höldum okkar striki. Gaman verður að sjá hvernig fer fyrir norðan þar sem þessi lið hafa oftar en ekki eldað saman grátt silfur. Þeir sem verða fyrir norðan um það leiti sem átökin hefjast eiga ekki að láta þennan leik framhjá sér fara, þar sem án efa verður um skemmtilegan leik að ræða fyrir áhorfendur.
Áfram SR!!