Dags: 29.11.2002 14:54
Jæja, jæja, loksins komið á heimasíðuna. Mikið hefur verið beðið um að setja á síðuna úrslit leikja í 3. flokki. Nú liggja allar upplýsingar fyrir og búið er að setja þetta á forsíðuna, neðst. Ekki eru öll kurl komin til grafar því að inní þessa töflu vantar upplýsingar frá leikjum milli Bjarnarins og SA. Samkvæmt þessari töflu hafa okkar drengir staðið sig virkilega vel og unnið alla sína leiki nema einn, sem endaði með jafntefli við Björninn fyrr á þessu tímabili.