Fréttir

Total items: 1194

Baráttuhugur kominn í menn!!

Dags: 03.12.2002 15:30


Þær fréttir berast nú með öruggum heimildum að norðanmenn í Skautafélagi Akureyrar séu nánast rúmliggjandi eftir átök helgarinnar við Björninn, a.m.k. sumir. Róðurinn í úrslitin hefur nú þyngst hjá þeim og heyrst hefur að verið sé að endurbæta "innbæjingarútumallt"-kerfið; hafa menn verið að hlaupa upp um fjöll og firnindi sem aldrei fyrr. Hvort það skilar sér inn á ísinn á eftir að koma í ljós, en reynslan kennir okkur að ekki ber að afskrifa norðantröllin fyrr en leiktíminn er liðinn og allir komnir í sturtu. Það má reyndar einnig segja um þá bláklæddu risa í suðri sem aldrei gefast upp, en þeir hafa æft stíft undanfarið og sjaldan litið jafn vel út og nú.
Mikil eftirvænting er því fyrir innbyrðisleik þessara liða í Íslandsmóti karla sem háður verður n.k. laugardagskvöld í Skautahöllinni í Laugardal kl. 20:00. Ekki er gott að segja til um úrslit leiksins en ef SR heldur uppteknum hætti og í síðustu leikjum, eiga SA-menn von á miklum átökum og mikilli baráttu frá þeim bláklæddu.

Á undan þessum leik mun 3.flokkur þessara liða etja kappi en sá leikur hefst kl.18:00.

Þeir sem mæta ekki á leikinn um helgina eiga eftir að naga sig í handarbökin langt fram yfir áramót, því nú hefur SR tækifæri á því að komast yfir SA í fyrsta skipti í Íslandsmóti karla.
Áfram SR!!!