Dags: 05.12.2002 09:02
...til síns heima. Þá er það staðfest að markmaður Bjarnarins, Bradley Williston er floginn heim á leið. Eitthvað hafði markverjunni mislíkað hér á landi þann stutta tíma sem hann dvaldi hér á landi meðal Bjarnarmanna.
Þeir eru sjálfsagt harmi slegnir og geta ekki annað en verið búnir að missa pínulítið vonina um að komast í úrslitin. Ekki er vitað hvernig þeir munu fylla uppí markið svo vel fari þar sem Rósar, sem er ungur og óreyndur, nær varla að fylla það gat sem Bradley skildi eftir sig. Sökum aldurs hefur hann þó nægan tíma til þess að koma sér í fremstu markvarðasveit landsins, þar sem Gulli,Trausti og Biggi tróna í dag.
Hinn markvörður Bjarnarins, Snævar, er enn fjarri góðu gamni þar sem strákurinn er að jafna sig eftir veikindi og verður víst frá í einhvern tíma.