Dags: 06.12.2002 09:21
Núna er búið að finna stað þar sem allar "íshokkíbullur" eru velkomnar! Sá staður er "Wallstreet" í Ármúla, fyrir ofan Árnesti, við hliðina á Hótel Íslandi. Sýndur verður NHL leikur sem fór fram í gærkvöldi á ókristilegum tíma (miðað við Ísland). Allir eru velkomnir en þess ber að geta að þetta er staður með vínveitingaleyfi þannig að þeir sem ekki hafa aldur til, verða að vera í fylgd fullorðinna.
Þetta er fyrsta kvöldið af mörgum sem verða í vetur en þetta er sjálfstætt framtak áhugamanna um íshokkí, hvort sem er á Íslandi eða erlendis.
Áfram SR!!