Fréttir

Total items: 1194

Þótt norðanvindar blási!

Dags: 06.12.2002 15:29


Um helgina koma þeir rauðklæddu SA menn í bæinn. Eitthvað betra hljóð er í þeim í þetta sinnið því kokhreystið er aftur komið, og stóru yfirlýsingarnar um sigur á SR eru þarna líka. SR-ingar taka þessu þó með stakri ró og einbeitingu. Ef það er nokkuð sem er öruggt í lífinu þá er það baráttuandinn hjá SR! Það verður þrautinni þyngri að sigra SR; lið sem er ekki með 3 ósigra á bakinu heldur 3 sigra, bæði á heimavelli og á útivelli.
Heyrst hefur að SA hafi sett gamalmenni í sínar raðir til þess að vekja samúð hjá mótherjanum. Þetta fæst varla staðfest en víst er að þeim verður engin miskunn sýnd, hvort sem um gamalmenni eða önnur menni er að ræða sem þeir lafhræddu SA-menn vilja tefla fram á móti hinu gríðarsterka liði SR.
Fyrir þá sem eru að velta því fyrir sér hvernig SR ætli að sigra SA í þessum leik, þá er það ekki neitt leyndarmál.... bara einsog síðast.

Von er á miklu fjölmenni á leikinn en áhorfendum hefur fjölgað jafnt og þétt í undanförnum leikjum, en vonandi er þetta þróun sem mun halda áfram. Það er því að sjálfsögðu ekki spurning hvert skal haldið n.k. laugardagskvöld. Munið svo að 3.fl. SR mun hita upp fyrir þennan leik en þeir eiga einnig leik gegn SA. Þar sjáum við hversu björt framtíðin er hjá SR. Leikur meistaraflokks hefst kl. 20:00 en 3.fl. l. 18:15.
Áfram SR!!