Fréttir

Total items: 1194

Tilsettu takmarki ekki náð!

Dags: 09.12.2002 09:00


Það er óhætt að fullyrða að þetta hafi ekki verið dagur meistaraflokks SR og þeir sannarlega fetuðu ekki í fótspor 3.flokks sem fyrir þennan leik sundurspiluðu SA menn. Leikurinn fór vel af stað og leikmenn beggja liða með fríska fætur. Mikið gekk á og nokkur færi sköpuðust, en það var ekki fyrr en Guðmundur Rúnarsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir gott skot frá bláu línunni. Skömmu síðar náði Elvar að skora gott mark eftir stoðsendingu frá Ingvari eftir örlítið fát fyrir framan mark SA-manna. Staðan þá orðinn 2 – 0 heimamönnum í vil. Kenny Corp náði þó að minnka muninn í eitt mark með góðu skoti þar sem pökkurinn fór milli fóta varnarmanna og á milli fóta á Gulla yfirmarkverju SR. Hélst staðan þannig allt til loka lotunnar. Eitthvað hefur sá fiðraði félagi þeirra norðanmanna, sem flýgur á hvolfi, ljáð þeim orð í eyra því að önnur lotan var hreinasta hörmung hjá SR-ingum, sem voru á hælunum allan leikhlutann og sáu nánast aldrei til sólar. Eitt vafasamasta mark deildarinnar í vetur leit m.a. dagsins ljós í þessum leikhluta þegar Rúnar Freyr Rúnarsson skaut að marki SR; pökkurinn virtist fara í ytri þverslána, svo í bakið á Gulla. Markadómari gaf ekki til kynna að pökkurinn hafi farið inn en dómari leiksins dæmdi pökkinn inni eftir mikla rekistefnu. Eins gott að reglurnar hafi verið á hreinu í þessu tilviki, sérstaklega um vægi markadómara og dómara uppi í stúku í tilvikum sem þessum. Hvað um það, hvert sóknarfærið á fætur öðru leit dagins ljós hjá SA sem nýttu sér þau til hins ýtrasta.
Í sem skemmstu máli þá tapaði SR leiknum með 2 mörkum gegn 7 í þeim versta leik sem SR hefur spilað í langan tíma.
Það er deginum ljósara að SR-ingar hafa litið bjartari dag en þennan.
Meira um leikinn síðar.
Áfram SR!