Dags: 10.12.2002 09:34
Það hlaut að koma að því að bundinn yrði endi á sigurgöngu SR-inga. Norðanmenn komu, sáu og sigruðu sannfærandi á laugardagskvöldið, þar sem sigurvissa í bland við leti SR-inga réðu þessum úrslitum. Af þessum leik geta SR-ingar dregið þann lærdóm að góður undirbúningur og rétt hugarfar skiptir öllu máli í íshokkí. En yfir hverju er svo hægt að gleðjast? Að SR-ingar sátu 2 mínútum lengur í boxinu heldur en þeir "penalty-kóngar" í SA? Varla. Eða hin glæsilega tækling Guðmundar Björgvinssonar á Rúnari "Lurki"Rúnarssyni? Kannski. Svo hörð var tæklingin að glumdi í höllinni og um stundarsakir var dauðaþögn á meðan "Lurkurinn" féll til jarðar með dramatískum hætti. "Höggið var svo mikið" sagði Rúnar "að ég vissi ekki á hvort markið ég var að sækja á og ég hringsólaði um sjálfan mig í smá stund" bætti hann svo við.
Hvað sem því líður þá eru SR-ingar farnir að undirbúa sig undir átök næstu helgar þar sem þeir mæta Birninum í fyrsta leik 5. umferðar. Bjarnarmenn hafa ekki verið sigursælir uppá síðkastið gegn SR og ekki tekist að skora mark í síðustu tveimur leikjum gegn SR. Bjarnarmenn urðu fyrir mikilli blóðtöku er þeir misstu markmanninn heim á leið. Hvort það kemur til með að hafa áhrif á leikinn á eftir að koma í ljós en hann er settur kl.20:00 á laugardagskvöldið. Er von á að menn taki á því þá.
Áfram SR!!