Dags: 10.12.2002 18:18
Það var ekki einungis meistaraflokkur SR er keppti við SA s.l. laugardagskvöld, heldur áttust einnig við 3. flokkar þessara liða. Og þar var nú sagan önnur! SR strákarnir sýndu frábæran leik og völtuðu hreinlega yfir piltana að norðan, 7-2 ! Því miður gátu karlarnir í SR ekki tekið sér þá til fyrirmyndar þetta sama kvöld, en nóg um það (lásu rangt á stigatöfluna?). Leikurinn var skemmtilegur á að horfa og oft brá fyrir stórgóðu samspili, þar sem pökkurinn gekk vel á milli leikmanna SR. Sérstaklega var þetta áberandi í seinni hálfleik, en þá var einsog SR-ingar gerðu sér grein fyrir hversu gott spil gat skilað góðum árangri. Mörkin og stoðsendingarnar dreifðust á nokkra leikmenn en Ingi Björn Halldórsson náði þó þrennu með miklu harðfylgni. Mörk SR-inga voru af ýmsum gerðum, slap-skot, úlnliðsskot, bakhandarskot, pot og snap-skot, sum hver stórglæsileg einsog t.d. úlnliðsskot Úlfars Andréssonar. Fyrra mark SA-inga kom eftir skógarferð Inga, sem greinilega vildi meira fjör, en seinna mark þeirra úr fallegu hraðaupphlaupi. Ingi þurfti þó nokkrum sinnum að verja erfið skot sem hann gerði af stakri snilld. Framherjar SR náðu oft að pressa mjög vel á varnarmenn SA-inga og á stundum áttu þeir mjög erfitt að koma pekkinum út úr varnarsvæði sínu. Annars spilaði allt lið SR-inga mjög vel og vörnin, með þá Guðmund Inga og Steinar Pál sem kjölfestu, átti frábæran dag. SR-liðið er greinilega firnasterkt og með mikið sjálfstraust. SA-ingar áttu við ramman reip að draga en þeirra sterkasti piltur var án efa #15.