Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn um helgina

Dags: 12.12.2002 17:35


Um næstu helgi mætast SR og Björninn í fyrsta leik 5. umferðar í Íslandsmóti karla. Björninn á harma að hefna þar sem SR hefur náð að halda þeim utan við markteiginn hjá Gulla í síðustu leikjum liðanna. Þeir eru óðum að jafna sig eftir að Bradley markmaður lét sig hverfa á braut í síðustu viku, en heyrst hefur að búið sé að setja Rósar í markið, hnoða hann eitthvað til. Á meðan hefur SR verið að jafna sig eftir afhroð síðustu helgar og leikmenn æft af kappi.
Harðir stuðningmenn SR láta sig að sjálfsögðu ekki vanta á leikinn en það er deginum ljósara að þetta verður mikill átakaleikur á milli þessara Reykjavíkurliða.
Áfram SR!!