Dags: 16.12.2002 18:41
Ekki er hægt að segja að stelpunum okkar hafi vegnað vel á móti Birnunum s.l. laugardagskvöld en leiknum lauk 20 - 0 fyrir Birnunum!. Leikurinn fór vel af stað og lengi vel tókst SR að halda í við Birnurnar en þegar tæpar 5 mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta náði Ásta Ýr Esradóttir að skora fyrir Birnurnar. Við það mark virtist öll barátta hverfa hjá okkar stelpum og Birnurnar náðu að skora 5 mörk til viðbótar áður en leikhlutinn var liðinn.
Í öðrum leikhluta hélt sagan áfram og Birnurnar röðuðu inn mörkum og eftir annan leikhluta var staðan orðin 13 - 0 Birnunum í vil.
Í þriðja og síðasta leikhluta héldu Birnurnar uppteknum hætti og kláruðu leikinn án þess að SR-stúlkur næðu að svara fyrir sig. Endaði leikurinn 20 - 0 Birnunum í vil. Þessi úrslit undirstrika þá staðreynd að okkar kvennalið á margt eftir ólært, enda aðeins æft í rúmlega tvo mánuði. En áhugann vantar ekki og með meiri æfingu geta þær farið að veita Birnunum og þeim í SA verðuga keppni.