Fréttir

Total items: 1194

Jólafrí

Dags: 21.12.2002 11:43


Þá eru leikmenn í yngri flokkum SR komnir í jólafrí og engar æfingar fyrr en mánudaginn 6. janúar á nýju ári. Meistaraflokkur mun æfa yfir jólahátíðina og 3. fl. milli jóla og nýárs. Eins verða nokkrir leikmenn SR á vegum landsliðsins U20 í Júgóslavíu um áramótin. Við hvetjum leikmenn okkar sem eru í fríi til 6. janúar að nýta sér almenningstímana í Skautahöllinni.