Dags: 23.12.2002 11:40
Áður auglýstir tímar fyrir meistaraflokk, 3.flokk og Gulldrengi sem áttu að vera í kvöld, sunnudagskvöld, og á morgun, 23.desember, falla niður og því ljóst að þessir flokkar komast ekki á ís fyrr en í fyrsta lagi 27.desember.
Ástæður fyrir þessari breytingu eru ókunnar að svo stöddu.
Hvað sem því líður þá ætlar meistaraflokkur að fara út að hlaupa og gera nokkrar vel valdar Mullers-æfingar, svona áður en jólasteikin sest á menn og þeir geta sig ekki hreyft fyrir jólaspiki og pakka-flóði.
Fyrir þá sem vilja koma með þá er mæting niður í skautahöll á æfingartíma.