Dags: 30.12.2002 09:47
Núna á að setja maskínurnar í gang og fara bræða lýsið að helspikuðum meistaraflokksmönnum.
Ætlunin er að mæta niður í höll klukkan 19:00 og taka létta upphitun... ekki má ofkeyra vélarnar í fyrsta starti, svona rétt eftir jólasteikina.
Æfingin á ís hefst kl.19:45 og er þetta staðfestur tími... svona ef æðri máttarvöld spila ekki inní. Á mánudagskvöldið 30. des. er önnur æfing og hefst hún kl. 20:15 á ís.