Dags: 03.01.2003 14:03
Eitthvað hefur jafnteflið við Spánverja haft áhrif á U-20 landsliðið þegar þeir spiluðu á móti Hollendingum og Ungverjum en báðir leikirnir töpuðust stórt, eða 15-2 og 15-4.
Enda þótt þetta séu ekki góð úrslit í íshokkí verður að hafa í huga að Íslendingar hafa ekki sömu breidd í landsliðum okkar í íshokkí einsog nágrannaþjóðir okkar. Í ljós þess er þetta þolanlegur árangur. Þegar þetta er skrifað eru okkar strákar að spila við Júgóslava og verða þeir að ná hagstæðum úrslitum gegn þeim og helst að vinna Mexikóa til þess að halda sér í riðlinum.
Netverjar verða að afsaka hvað þessar fréttir berast seint en vefstjóri þessarar ágætu síðu er búinn að vera sambandslaus við umheiminn í heila 3 daga.
Áfram Ísland