Dags: 04.01.2003 12:05
Ísland sigraði Mexíkóa með fjórum mörkum gegn einu í dag á HM í Novi Sad í Júgóslavíu.
Í stuttu máli réðu Íslendinar lögum og lofum í þessum leik og kom fyrsta mark leiksins á 13. mínútu eftir samspil þeirra Stefáns Hrafnssonar(SA), Snorra Rafnssonar(SR) og Jóns Gíslasonar(SA)sem skilaði pekkinum inn.
Rétt rúmum sex mínútum síðar bætti Guðmundur Björgvinsson(SR) við markatöluna þegar hann skoraði með aðstoð frá Jóni Inga Hallgrímssyni(SA) og Daða Heimissyni(BJ) og staðan því 2 - 0 fyrir Ísland eftir fyrsta leikhluta.
Í annarri lotu slökuðu okkar strákar örlítið á og skoruðu ekki nema eitt mark og var þar Brynjar Þórðarsson(BJ) að verki með dyggri aðstoð Trausta Bergmanns(BJ) og Guðmundar Ingólfssonar(BJ). Staðan því 3 - 0 fyrir Íslandi.
Mikið gekk á í síðasta leikhlutanum þar sem dæmdar voru alls 24 mínútur á liðin í boxið. Hinn knái leikmaður Snorri Rafnsson náði þó að skora eitt mark í viðbót fyrir Ísland þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Stuttu síðar náðu Mexíkóar að skora sitt eina mark í leiknum og var þar Alexis Cervantes að verki. Ekki dugði það til og unnu Íslendingar með 4 mörkum gegn einu. Íslendingar náðu því að halda sér í riðlinum í eitt ár í viðbót og verður það að teljast góður árangur.
Það vekur athygli á vefnum hjá iihf.com hversu nákvæm skrá er haldin yfir allar tölulegar upplýsingum um leikmenn, leiki og lið. Þar kemur m.a. í ljós að Jón Trausti, markmaður liðsins, er í 5. sæti yfir bestu markmenn riðilsins, og hefur hann fengið lang, lang, lang flest skotin á sig í þessum leikjum eða alls 210 skot í 5 leikjum. Án efa hefur hann haldið Íslendingum á floti á raunarstundum.
Við Íslendingar unnum ekki mótið en við förum heim með einn vafasaman titill í farteskinu, en það er að vera með þann leikmann sem fékk flestar refsimínútur. Daði Örn Heimisson var að meðaltali með 10,20 refsimínútur í leik eða alls 51 mínútu.
En hvað um það, þá stóð landsliðið sig vel í þessum viðureignum og nokkuð ljóst að við Íslendingar eigum góðan efnivið í sterka leikmenn fyrir framtíðina.
Strákarnir koma svo til landsins á morgun
Áfram Ísland