Fréttir

Total items: 1194

Skautanámskeið fyrir byrjendur

Dags: 07.01.2003 14:24


Íshokkídeild SR mun í janúar og febrúar bjóða uppá námskeið í skautaiðkun fyrir byrjendur. Fyrsta námskeiðið er fyrir börn en fyrstu tímarnir eru miðvikudaginn 8. janúar kl. 15:00 í skautahöllinni í Laugardal (skráning á staðnum) og sunnudaginn 12. janúar kl. 18:20. Þátttökugjald fyrir tveggja mánaða námskeið (12 skipti) er kr. 4.000. Námskeið þessi henta m.a. mjög vel fyrir þau börn sem hafa áhuga á að æfa íshokkí en skortir skautareynslu og færni. Námskeið fyrir fullorðna verður auglýst innan skamms. Kennari á þessum námskeiðum verður Helgi Páll Þórisson.