Fréttir

Total items: 1194

Kvennaíshokkískóli!

Dags: 16.01.2003 14:40


Strax eftir áramót fengu Bjarnar- og SR stelpurnar glæsileg tækifæri til að losna við jólamatinn og nýársþynnku: Fyrsti íshokkískólinn fyrir stelpur var haldinn í Skautahöllinni dagana 2. til 5. janúar. Undir stífri, en frábærri, stjórn Þjóðverjans Florians Kuhn tóku 24 stelpur (þar af 2 markmenn) þátt í þessu námskeiði sem innihélt ísæfingar, þrekæfingar og margskonar kennslu, bóklega og verklega. Mikil áhersla var lögð á “Power Skating”, þ.e. hvernig á að skauta með sem mestum afköstum, en fyrsti einn og hálfur dagurinn var helgaður þessu eingöngu. Annar dagur námskeiðisins var um kylfutækni og sendingar. Þriðji dagurinn byrjaði með léttu hlaupi til að slaka á þreyttum vöðvum. Svo var fjallað um “einn á móti einum” og “tæklingar” í kvennahokkíinu –hvað má og hvað má ekki gera. Vonandi var þetta smáskref í áttina að auðvelda starf dómaranna á kvennaleikjunum.
Síðasta daginn var tvisvar farið á ís með skotæfingum, sýnd stutt kennsluvídeó, en hápunkturinn var svo mót þar sem stelpunum var skipt í sex lið, þrjár í hverju liði. Eftir marga æsispennandi leiki varð lið skipað þeim Sigrúni Agöthu Árnadóttur (BJ), Berglindi Ólafsdóttur (SR) og Lilju Sigfúsdóttur stigahæst og var það verðskuldaður sigur. Sex stórar pizzur voru varla nóg til að endurheimta orkubirgðir stelpnanna eftir þessi átök.
Þjálfararnir Florian, Ingvar og Gulli fá bestu þakkir fyrir frábæra frammistöðu á þessu námskeiði sem og Hilmar Björnsson forstöðumaður SHR fyrir að útvega þessa góðu ístíma, Dana fyrir að taka myndir og ekki síst Icelandair fyrir aðstoð við heimferð þjálfarans, til Þýskalands.

Áfram stelpur! Vonandi verður meira um slíkar framfarir!

Samantekt: Patricia Pyrka

Myndir frá þessum íshokkískóla eru komnar hér á netið undir Félagið > Myndir.