Dags: 21.01.2003 12:32
Í gær var ráðist í það stórvirki að mynda alla flokka og alla leikmenn í 7,6,5,4 og 3 flokki. Kristján Maack ljósmyndari reið á vaðið um sexleytið og stillti upp ljósum og öðrum ljósmyndabúnaði í kringum orkumikla íshokkídrengi með kylfur á lofti með tilheyrandi skarkala og látum.
Allt gekk þetta nú vel fyrir sig þar sem þeir Peter, Gummi, Gulli og Helgi stýrðu mannskapnum einsog herforingjar svo allt gengi hratt og örugglega fyrir sig.
Fyrir þá sem hafa áhuga á því að fá myndir af strákunum þá standa þær til boða bráðlega. Verður það tilkynnt hér á vefnum þegar þær verða tilbúnar!
Áfrma SR!!