Fréttir

Total items: 1194

Spilað uppá gamla mátann....

Dags: 22.01.2003 09:31


Í gærkveldi fór fram æfing hjá hluta meistaraflokks SR þar sem spilað var uppá gamla mátann, þ.e.a.s niður á Reykjavíkurtjörn. Skipt var í lið og létt spil tekið. Þetta fyrirkomulag tókst ágætlega en það hefði ekki sakað að hafa flóðljós eða sjálflýsandi pökk. Hins vegar er ljóst að æfingar sem þessar, sem draga dám af þeirri slæmu æfingaaðstöðu (þ.e. skortur á ístíma) sem skautafélögunum er búin hér í Reykjavík, eru háðar duttlungum veturs konungs. En, alla vega skemmtileg tilbreyting þegar færi gefst.