Dags: 24.01.2003 12:09
Um næstu helgi verður mikið um að vera í íshokkí norður á Akureyri, bæði landsliðsæfingar og leikir í Íslandsmeistaramóti karla og kvenna.
Hluti meistaraflokks SR leggur af stað til Akureyrar í dag en í kvöld bíður þeirra æfing með landsliðinu. Ekki mun það hafa nein áhrif á liðsmenn SR þar sem þeir eru í fyrirtaks formi og vel í stakk búnir til að takast á við þessar landsliðsæfingabúðir.
Á laugardagskvöldið munu svo bæði kvennaflokkur og meistaraflokkur SR mæta SA.
Í byrjun desember s.l. leit ekki vel út fyrir SA þar sem bæði SR og Björninn höfðu skellt Íslandsmeisturunum. En þeir tóku sig á, unnu SR skömmu fyrir jól og um síðustu helgi sýndu norðanmenn og sönnuðu er þeir lögðu Björninn, að þeir eru aldeilis ekki af baki dottnir. SR-ingar hafa verið að byggja sig upp dag frá degi og er jólasteikin löngu runnin af þeim og spengilegir kroppar í hvívetna komnir í staðinn.
SR hafa misst markaskorarann Snorra Rafnsson út á land í fiskiðnað en í staðinn er kominn úr barneignarfríi hinn eldsnöggi Hallur "TazDevil" Árnason. Leikurinn á semsagt að geta orðið eiturspennandi og með sigri nær SR norðanmönnum að stigum.
Til gamans má geta að fjölmenni úr höfuðstaðnum verður í höllinni á Akureyri og ljóst að SR-ingar munu upplifa svipaða stemningu og þegar Brynjumótið var haldið fyrr í vetur, en þá sigraði SR norðanmenn undir dúndrandi hvatningu frá fjölmörgum áhorfendum að sunnan.
Þeir sem eru heitir fyrir leikinn þá byrjar hann kl.17:00 og kvennaleikurinn strax á eftir kl.20:45.
Áfram SR!!