Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn um helgina.. breyttur tími....

Dags: 30.01.2003 17:58


Um helgina mætast SR og Björninn í fyrsta leik 6. umferðar í Íslandsmóti karla í íshokkí. Leikurinn átti að byrja klukkan 18:20 og 3.fl. leikurinn síðan klukkan 20:45.. því hefur verið breytt og byrjar 3.fl. leikurinn kl.18:30 en meistaraflokksleikurinn kl.20:00.

Það má með sanni segja að Bjarnarliðið sé orðið frekar fáliðað en þrír leikmenn þeirra eru í leikbanni eftir síðasta leik. Auk þess hlaut Sergei Zak (BJ) einhver meiðsli í síðasta leik er hann skautaði stöngin - inn! Hann hefur þó óðum verið að jafna sig eftir þá ákeyrslu og verður vonandi frískur fyrir leikinn á sunnudaginn.
En þó að búið sé að klippa neglurnar af bjarndýrinu og raka það sköllótt, er það enn vel tennt og getur svo sannarlega bitið frá sér. Oftar en ekki hafa bæði SA-menn og SR-ingar misreiknað sig illilega á móti Birninum og uppskorið tapleik, og þá sérstaklega þegar virtist fokið í flest skjól hjá Bjarnarmönnum. SR-getur náð sér í 2 stig í þessari viðureign en þau eru ekki sjálfgefin ef marka má fyrri leiki þessara liða.
Við hvetjum íshokkíáhugamenn til að fjölmenna í skautahöllina.
Áfram SR!!