Fréttir

Total items: 1194

Verður 3.fl SR Íslandsmeistari á sunnudag??

Dags: 31.01.2003 22:10


N.k. sunnudag takast á 3.flokkur SR og Bjarnarins í Íslandsmótinu en SR getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í þessum flokki með sigri í þessum leik. Því má með sanni segja að um úrslitaleik sé að ræða fyrir okkar stráka. Leikir milli þessara liða hafa oft verið æði spennandi og það ættu fáir að láta þennan leik fram hjá sér fara.
Leikurinn hefst stundvíslega kl.18:30 og er aðgangur ókeypis!! Allir niður í höll!!
Áfram SR!!