Fréttir

Total items: 1194

SR Íslandsmeistarar í 3.flokki!!

Dags: 03.02.2003 15:35


3.flokkur sýndi það að við eigum góðan efnivið í afburðaleikmenn framtíðarinnar. Þó að leikurinn í gær hafi verið spennuminni heldur en aðrir leikir vetrarins þá voru nokkrir góðir sprettir hjá báðum liðum.
Kolbeinn litli Sveinbjarnarson stimplaði sig inní leikinn þegar 13.mínútur voru liðnar af leikhlutanum með því að skora ágætismark með aðstoð frá Sturlu Magnússyni. Gauti Þormóðsson jafnaði leikinn með fínu marki eftir ágætis skautahlaupi upp ísinn.
Aðeins einni mínútu síðar, eða þegar 3 mínútur voru eftir af fyrri leikhlutanum, náði Gauti aftur að skora með því að troða pekkinum inn á milli fóta Arnars sem stóð í marki Bjarnarmanna. Fleiri urðu mörkin ekki í þessum leik þrátt fyrir mörg ágætis marktækifæri. Lokastaðan því 2-1 fyrir SR en með þessum sigri tryggði SR sér Íslandsmeistaratitillinn í 3. flokki.
Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.

Mörk/stoðsendingar:
SR: Gauti 2/0
BJ: Kolbeinn 1/0, Sturla 0/1

Refsimínútur
SR: 10.mín
BJ: 2.mín

Dómari:
Helgi Páll Þórisson