Dags: 03.02.2003 16:32
Í gærkvöldi mættust ekki bara 3.flokkur Bjarnarins og SR heldur líka meistaraflokkar þeirra.
Fyrir leikinn var talið að Björninn ætti á brattann að sækja, m.a. þar sem 3 leikmenn þeirra voru í leikbanni. Þrátt fyrir fjarveru þeirra var baráttuandinn góður hjá Bjarnarmönnum.
SR-ingar ákváðu að setja menn inn í liðið sem hafa verið að banka á meistaraflokksdyrnar æði mikið og oft í vetur - og þeir stóðu fyrir sínu og gott betur...
Gummi Kalli og Steinsen tvíburarnir voru settir í fremstu víglínu með þungarvigtarmönnum úr meistaraflokki sér til fulltingis. Gamli refurinn Kristján "Diddó" Óskarsson byrjaði leikinn með tilþrifum er hann náði pekkinum eftir barning fyrir framan mark Bjarnarmanna og þeytti honum í markið af afli. Steinn Rúnarsson var þar með stoðsendingu. Ekki lét hann Diddó þar við sitja heldur bætti um betur er hann skoraði glæsilegt mark með skoti í skeytin-inn, þegar tæpar 7 mínútur voru liðnar af fyrsta leikhlutanum. Guðmundur Rúnarsson, einn úr Steinsen-fjölskyldunni, sá um stoðsendinguna. Þegar fjórar mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta var hin víðfræga hokkífjölskylda enn á ferð er Steinn Rúnarsson skoraði með stoðsendingu frá Peter Bolin og Kristjáni Óskarssyni. Staða því orðin 3 - 0 SR í vil.
Ekki voru liðnar 2 mínútur þegar Hallur Árnason skoraði gott mark í "power-play" eftir stoðsendingu frá Peter Bolin. Stuttu síðar skoraði finnska tröllið Richard Eiríkur Tahtinen glæsilegt mark í "power-play", með þrumuskoti rétt fyrir innan bláu línuna, eftir stoðsendingu frá Ágústi Ásgrímssyni.
Bjarnarmenn náðu að svarað fyrir sig þegar 4 mínútur voru eftir af öðrum leikhluta, með ágætis marki frá Daða Heimissyni eftir stoðsendingu frá Sergei Zak. Eftir uppkast í varnarsvæði SR tók Hallur Árnason pökkinn og þaut sem skrattinn væri á hælum hans og skaut pekkinum í vinstri samskeytin.
Aftur dró til tíðinda, eftir mikinn hamagang fyrir framan markið hjá Bjarnarmönnum, er Guðmundur Karl skoraði fyrir SR með þrumuskoti. Staðan því orðinn 7 - 1 fyrir SR þegar 3. leikhluti hófst. SR-ingar skiptu út markmanni sínum og settu Orra Hermannsson á milli stanganna, en Orri hefur ekki spilað meistaraflokksleik síðan fyrir Persaflóastríð. Hann hafði hins vegar engu gleymt og stóð sig með ágætum.
Strax í byrjun 3. leikhluta fékk Hallur á sig sturtudóm fyrir að stinga með kylfu og SR-ingar því einum manni færri í 5 mínútur. Þetta nýttu Bjarnarmenn sér vel og skoruðu tvö mörk áður en SR náði fullum styrk. Stuttu síðar fékk Birgir Hansen sturtudóm fyrir að sparka í andstæðing eftir hnoð á milli hans og Peter Bolin í einu horninu. SR-ingar náðu ekki að nýta sér þennan liðsmun en Bjarnamenn áttu síðan lokaorðið í leiknum þegar Sergei Zak skoraði ágætis mark eftir uppspil hjá Daða Heimissyni.
Leikurinn endaði því 7 - 4 fyrir SR og því ljóst að SR og SA verða í úrslitum þetta árið.
Mörk/stoðsendingar
SR: Kristán(Diddó) 2/1, Hallur 2/1, Steinn 1/1, Peter 0/2, Gummi Kalli 1/0, Ágúst 0/1, Guðmundur 0/1.
Björninn: Daði 2/2, Sergei 1/2, Hrólfur 0/1.
Brottvísanir
SR: 49 mín - þarf einn leikdómur.
Björninn: 53 mín - þar af einn leikdómur.
Dómari:
Viðar Garðarsson