Dags: 04.02.2003 22:35
Undir 18 ára landslið Íslands hélt af stað til Sarajevo í Bosníu Herzegóvínu í morgun. Flogið var til London og þaðan áfram til Trieste á Ítalíu. Þar átti að bíða eftir hópnum rúta, sem flytja átti þá til Sarajevó. Einhver mistök áttu sér stað við bókun og frágang á rútunni því hún hefur ekki fundist enn. Fararstjórarnir Magnús, Andrés og Þorleifur ásamt þjálfurunum Paddy og Sergei eru að koma hópnum fyrir á hóteli fyrir nóttina en reiknað er með að ferðalagið hefjist í morgunsárið að því gefnu að rútan finnist. Ítalirnir yppta bara öxlum og segja “si senjore, comprende” hér var lokað klukkan 5.
Ný ferðaáætlun verður birt hér um leið og ljóst verður hvernig spilast úr þessu.